Innihald:
- 800g Lönguhnakkar
- 1 Rauðlaukur
- 250 ml fiskisoð
- 2 tsk. Harissa frá Mabrúka
- Olía
- Smjör
- Salt og pipar
Aðferð:
- Saxið laukinn
- Skerið lönguna í steikur
- Saltið og piprið lönguna
- Steikið lönguna upp úr olíu og smjöri á frekar háum hita, 1 mínútu á hvorri hlið
- Setjið lönguna í eldfast mót
- Lækkið hitann á pönnunni
- Steikið laukinn í nokkrar mínútur
- Bætið fiskisoði á pönnuna
- Sjóðið niður í 10-15 mínútur
- Á meðan, blandið 2 teskeiðum af harissa við 2 teskeiðar af ólífuolíu
- Makið helmingnum af harissunni og olíunni yfir fiskinn
- (Notið síðan afganginn af harissunni og olíunni sem ídýfu fyrir eitthvað snakk, grænmeti eða jafnvel harðfisk)
- Hellið lauksósunni yfir fiskinn
- Bakið í ofni í ca. 10-20 mínútur eftir þykkt fisksins og eftir smekk.
- Berið fram t.d. með hrísgrjónum og salati